Eitt af því sem okkur finnst alveg ómissandi í aðdraganda jóla, ekki síst til að fá lyktina í húsið, er að rista möndlur.

Hér kemur uppskriftin - Gangi ykkur vel :)
1 dl sykur
0,5 dl vatn
3 dl. möndlur
1 msk. kanell og smá vanilla ef þið viljið
Setjið allt á pönnu, hitið rólega (ég geri þetta reyndar frekar hratt eins og allt en segi þetta svona til að þið farið varlega :)
Hrærið stöðugt í - fyrst er sykurvatnið bara eins og þunn sósa en hafið engar áhyggjur, hrærið bara lengur og alveg þar til sykurinn fer að kristallast á pönnunni og loða við möndlurnar - þá hellið þið þessu bara á smjörpappír og látið kólna.
Njótið :)
kv. Dísa

